o jú jú það er víst kominn tími á blogg....
mánuður síðan síðast og viti menn eitthvað búin að ske ég er t.d búin að fara eina ferð til Hollands, eina ferð í stykkishólm, eina ferð í Garðinn en þangað var ég að koma í fyrsta sinn....get ekki sagt að ég hafi heillast neitt svakalega en þetta er ábyggilega ágætis bær.
Holland klúðraðist alveg er frekar svekt en lífið heldur víst áfram og ég verð bara að koma sterk inn að ári er svo bara að bíða spennt eftir listaháskólasvari er samt ekkert alltof bjartsýn, nenni bara hreinlega ekki að vera að gera mér vonir en ég komst þó í viðtal í bæði arkitektúr og vöruhönnuninni.
Til að hressa mig við og hætta aðeins að spá í þessum skólamálum keypti ég mér bara far til Egyptalands

ég fer út 7.júlí og verð í tvær vikur, 11 daga í Sharm el sheikh þar sem ég ætla sko að nýta mér tækifærið og kafa það á víst að vera alveg geggjað þarna svo verðum við í tvær nætur í Cairo , er farin að kvíða frekar mikið fyrir þar sem við erum að fara á versta tímanum uppá hita að gera...
jæja meira er það ekki í bili ég skal gera mitt besta og reyna að láta ekki mánuð líða aftur
sæl að sinni