Já já kominn tími á nýtt blogg...
Lífið er aftur komið í gömlu rútínuna og ég get ekki sagt að ég
sakni allra kúnnanna úr Kringlunni en ég á þó eftir að sakna
launanna minna...
En þegar maður var búinn að kveðja jólinn var komið að því að
koma sér í skólann og mér líst bara nokkuð vel á þessa önn verð
samt að viðurkenna að ég væri alveg til í að fara að vera
einhverstaðar annars staðar en á klakanum næstu mánuðina
sérstaklega þegar maður hugsar til þess að það er ár núna síðan að
við skötuhjúin vorum á leið til danaveldis núna fáum við aðeins að
heimsækja það í örfáa daga í febrúar...
og hvað er málið með veðrið maður vonast til þess að það verðu
hvít jól en ekkert gerist um leið og jólunum er svo skotið í burtu
kemur þessi svakalega hríð og ekki nóg með það að þá er ég einnig
farin að taka strætó í skólann og er því þessi óvænta snjókoma
síður en svo velkomin!
Jæja ég er farin í bólið þar sem að ég þarf minn 8-10 tíma svefn
eins og svo margir vita
og þar sem að ég er að strætóast þarf ég
að vakna á heldur ókristilegum tíma
góða nótt elskurnar kossar og knús