þá er maður fluttur frá hótel mömmu þannig að framundan er tómur
ískápur, mikið af þvotti og fleiri skemmtilegheitum
það gengur
frekar hægt að koma okkur fyrir því við eigum alveg endalaust af
fötum sem vantar pláss sérstaklega þegar að það er ekki hægt að
byrja að raða í fataskápinn út af einhverjum lagfæringum.
Skólinn er enn rólegur en á meðan vinn ég bara af mér
lappirnar.
Fór í bíó um helgina á The Libertine með Jonny Depp aupvitð var
hún góð...og svo svaf ég og vann nei ekki mikið gert þessa
helgina...
Er að gæla við þá hugmynd að kíkja til Lenu á Akureyri veit samt
ekki hvort ég á að hætta mér aftur upp í einhverja litla rellu

jæja er farin að læra á photoshop...í þetta sinn á íslensku