Begga

Begga

14.06.2008 22:54:58 / beggagk

sveitin hún heillar

og það varð blogg....

ætla að verða aðeins öflugri í þessu bloggi mínu þar sem ég bý núna úti í sveit og er því fjarri vinum og vandamönnum sem hafa nú kannski áhuga á því að fylgjast með því hvað ég er að gera :D hver veit???
síðan síðast er ég hætt að vera kennari og orðinn kokkur á skipi já takk fyrir hver sagði svo að stelpan væri ekki fjölhæf, þess á milli svara ég símanum á skrifstofunni og sé til þess að fólk komist ýmist yfir breiðafjörðinn eða í suðureyjasiglingu hingað til hef ég ekki gert neinar gloríur en það á nú enn eftir að reyna á það....
Núna veit ég líka hvað ég er að fara að gera næsta haust ég komst inn í myndlistarskóla reykjavíkur í nám sem heitir Mótun, það er s.s hönnunarnám á háskólastigi þar sem ég vinn mikið með leir...ég er svaka spennt er farin að sakna þess allverulega að vera ekki í skóla ætla að prufa þetta allavegana í ár og sjá svo til, hef samt á tilfinningunni að ég eigi nú eftir að vera þarna í þessi tvö ár svo getur maður farið út og tekið síðasta árið þar...verí næs....
Í dag eru akkúrat 23 dagar þangað til í flýg til land egyptanna til að grilla mig og kafa smá...það verður nú gaman en svo sný ég mér aftur að sjónum þegar ég kem heim á klakann....
Eini gallinn við þessa snilldar sumarvinnu mína er að ég vinn alveg helvíti mikið, er að vinna streit til 26 en það góða við það er að ég kemst á Sigurrósartónleikana í siðmenningunni þá vona ég til að fá að sjá sem flesta hlakka extra mikið að hitta hana frænku mína sem ákvað að flytja til baunalands...

jæja ég ætla ekki að röfla meira, er að fara á eitt gott fyllerí og svo í flatey á morgun með einhverjar fyllibyttur...

síja

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 11:10:34 / beggagk

eftir 14 ár þá er okkar tími spái ég....;)

ok markmiðið er að láta ekki líða mánuð á milli færsla....

það er alveg korter í sumar hjá mér...fékk smjörþefinn af sumrinu um seinustu helgi en þá fór ég í stykkishólm í smá bátsferð...það endaði með mikilli þreytu og sjóriðu!
    
    Mér líður svolítið eins og það sé komið aftur árið 2001...

    Egyptaland er á næsta leiti eða nákvæmlega eftir 40 daga!

    Þegar ég er ekki að vera 16 ára aftur er ég á miljón að gefa þessum börnum einkunnir...ég þarf að gefa öllum skólanum einkunnir! ekki bara einum bekk en ég fer að sjá fyrir endanum á þessu.....

    Ísland varð í 14.sæti í júró...jæja það er þó allavegana betra en 16.sætið þannig að með þessu áframhaldi vinnum við nú kannski einhverntíman! HAHAHA einmitt....:haha:

Jæja meira er það ekki í bili, ég bið bara að heilsa ykkur og óska þeim sem sumarið er komið hjá gleðilegs sumars....



    

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 10:56:32 / beggagk

hva bara mánuður

o jú jú það er víst kominn tími á blogg....

mánuður síðan síðast og viti menn eitthvað búin að ske ég er t.d búin að fara eina ferð til Hollands, eina ferð í stykkishólm, eina ferð í Garðinn en þangað var ég að koma í fyrsta sinn....get ekki sagt að ég hafi heillast neitt svakalega en þetta er ábyggilega ágætis bær.
Holland klúðraðist alveg er frekar svekt en lífið heldur víst áfram og ég verð bara að koma sterk inn að ári er svo bara að bíða spennt eftir listaháskólasvari er samt ekkert alltof bjartsýn, nenni bara hreinlega ekki að vera að gera mér vonir en ég komst þó í viðtal í bæði arkitektúr og vöruhönnuninni.

Til að hressa mig við og hætta aðeins að spá í þessum skólamálum keypti ég mér bara far til Egyptalands :D ég fer út 7.júlí og verð í tvær vikur, 11 daga í Sharm el sheikh þar sem ég ætla sko að nýta mér tækifærið og kafa það á víst að vera alveg geggjað þarna svo verðum við í tvær nætur í Cairo , er farin að kvíða frekar mikið fyrir þar sem við erum að fara á versta tímanum uppá hita að gera...

jæja meira er það ekki í bili ég skal gera mitt besta og reyna að láta ekki mánuð líða aftur

sæl að sinni


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 20:26:03 / beggagk

Sumarið er tíminn

Hefur einhver tekið eftir því hvað veðrið er stórfurðulegt hérna? Í dag er ég í sumarskapi, ég veit ekki hvort það sé Scissor systrum eða veðrinu að þakka en engu að síður er ég í massa sumarskapi, á fimmtudaginn hinsvegar snjóaði!
    Ég er á milljón að gera verkefnið fyrir Eindhoven og eftir því sem ég kemst nær því að klára það þá stressast ég meira upp veit ekki hvort það sé út af því að það eru þrír dagar þangað til ég fer eða hvort það sé það að taskan sem ég er að gera er huuuuges?? og það á að vera hægt að taka hana með á hjólið, veit ekki alveg hvernig ég fer að því að útsskýra hvernig það á að vera hægt :S
    En þar sem ég er í sumarskapi ætla ég að gleypa nokkrar kæruleysistöflur hætta að hugsa um stóru töskuna og skella mér á djammið ég held að það sé eina vitið. Og það sem meira er ég er að fara að borða grillmat mmmm....
Spurning hvort ég fari bara að setjast út í sólbað :D
jæja svo er það bara Egyptaland í sumar.....játs

veriði sælar elskurnar

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 09:58:52 / beggagk

jiiii ég er svo dugleg

jæja er farin að vera helvíti öflug í þessu bloggi, það er svona þegar maður er með langar pásur þegar enginn annar er í pásu í vinnuni þá breytist maður einfaldlega í tölvunörd.

Það sem er nýjast hjá mér er að ég er flutt í bili í siðmenninguna reyndar bara 105 sem er auðvitað ekki eins gott og 101 en þetta sleppur, fólk nennir jafnvel að fara að heimsækja mig núna ;)
Ég og Svana erum búnar að panta okkur hótel í Eindhoven og Amsterdsam og komumst að því að skólinn sem við erum að sækja um í er alveg niðri í bæ! sem bjargar auðvitað öllu ekkert neitt úthverfavesen aftur...aldrei
Um síðustu helgi fór ég á alveg ægilega skemmtilegt vinnudjamm en við fórum út að borða á sjávarréttakjallarann og fenguð auðvitað geggjaðan mat, kvöldið endaði svo á apótekinu og svo var maður bara ferskur í vinnuni daginn eftir.

Meira ef ég ekki að segja í bili, en mér tókst áð drepa nokkrar mínútur...er farin að kenna litlu krílunum mínum...

ble

btw ég er var meðtekin inn í skynsemisklúbbinn: www.skynseminraedur.bloggar.is ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 12:39:59 / beggagk

aldrei aftur

Þorrablótið er búið og endaði það frekar skrautlega með marblettum, hausverk og minniseysi, ætla að reyna að halda mig frá áfengi á næstunni :$

Annars er það helsta að frétta að ég komst ekki inn í amsterdam skólann sem var frekar súrt eeen ég er allavegana að fara út 8.apríl í viðtal í Eindhoven þannig að ég ætla ekki að vera að væla...

eeen meira er það ekki í bili er farin að sauma með fullan bekk af stelpum...
ble


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 22:04:25 / beggagk

nöldur, skólar, leikhús og djamm djamm djamm

:lol:afhverju breyttist útlitið á síðunni bara svona allt í einu??? bara svona réttsísona án þess að maður sé spurður.

eeeen síðan síðast er ég búin að fá svar frá öðrum skólanum í Hollandi s.s þeim sem er í Eindhoven þar sem ég var boðuð í viðtal! núna sit ég sveitt fyrir framan tölvuna og bíð eftir hinu svarinu, þar sem að ég veit að þeir eru farnir að senda út svör en þeir virðast ekkert ætla að drífa sig að því að svara mér....vandamálið er að ég get ekki bókað far fyrr en ég fæ að vita hvort ég komist í inntökuprófið í Amsterdam og gæti því farið hækkað upp úr öllu valdi á meðan ég er að bíða...

Þessa dagana er ég í einherju leikhúsmaraþoni ég fór um daginn á Gosa með Þóreyu sem var auðvitað dúndurstuð, ég er að reyna að koma mér á La Traviata ef ég fæ miða það virðist sem allt Ísland ætli að sjá þetta, síðan er það baðstofan í febrúar þar sem að það er 50% afsláttur, kommúnan þar sem við vinkonurnar erum búnar að tryggja okkur miða mjög framarlega til að hafa gott útsýni á fallega leikara, og svo er ég að fara á Ivanov.

Helgin var hinsvegar skrautleg hjá mér en ég skellti mér á Akranes til að djamma með Sif og Rut það endaði með litlu minni daginn eftir og alveg agalegan verk í höfðinu en það var alveg ægilega gaman hjá okkur enda líka hrikalega langt síðan að við djömmuðum saman, þetta var svo eiginlega upphitun hjá okkur fyrir næstu helgi en þá ætla ég að skella mér á þorrablót...

annars gengur vinnan bara vel verð stundum frekar geðveik á ákveðnum árgöngum en ég reyni að hemja mig...á meðan tel ég niður dagana í páskafrí en þá er planið að skella sér norður til hennar Lenu minnar sem btw ætlar að fara að fjölga sér!!!

jæja þetta er orðin alltof langur pistill...

er farin að hlaða batteríin fyrir komandi viku :lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 22:31:27 / beggagk

fullorðnir vs börn???

Mér finnst ég hafa orðið fullorðin á einum sólarhring...hvissbarabúmm þetta bara gerðist...ég fór úr því að vera áhyggjulaus í menntaskóla yfir í kennara sem situr á kennarastofunni sötrandi kaffi og ræðandi mikilvæg málefni við fullorðið fólk! allt í einu er ég farin að spá alvarlega í það að koma mér í háskóla og jafnvel sækja um í fleirum en einum skóla í þetta sinn, svona gera smá alvöru úr þessu. Ég er farin að spá í íbúðarkaupum og komin á bíl þar sem ég þarf núna að fara úr einu úthverfinu í annað nei fyrirgefiði í sveitina þar sem ég á sjálfsagt eftir að byggja mér einbýlishús og unga út börnum bráðlega.....8|

 áður en það líður yfir mig ætla ég að hætta þessum vangaveltum en að öðrum og þeim mun mikilvægari....

hvað er málið með þessa borgastjóra! borgarstjórnin er farin að skipta um borgarstjóra eins og nærbrækur! ekki miskilja mig ég hef ekkert á móti Ólafi sem er víst að far að stjórna okkar heittelskuðu borg ég er bara búin að fá mig fullsadda að því hvernig þeir fara að þessu, og núna ætla þeir að skipta þessu á milli sín..."okey sko ég má vera borgarstjóri fyrri helminginn og svo mátt þú". Hvernig á maður að geta borið virðingu fyrir þessum mönnun...maður bara spyr sig???

jæja nóg af tuði og fullorðinsleikjum í bili

er farin að verða fullorðin

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 00:15:54 / beggagk

nýtt og gamalt...

já það má sko segja það að það er vel kominn tími á færslu heldur langt síðan síðast og þá auðvitað margt búið að gerast, t.d eru jólin búin ég hefði nú haldið að það væri farið að róast í kringlunni en svo er víst ekki...einnig er komið annað ár 2008, það leggst ágætlega í mig en samt með frekar blendnum tilfinnignum, árið 2007 var bæði gott og slæmt, fullt af merkilegum hlutum gerðust t.d eignaðist ég yndisleg lítil frændsystkin, ég trúlofaði mig, útskrifaðist úr iðnskólanum þar sem ég er búin að vera í þrjár frábærar annir með æðislegu fólki, sókti í fyrsta sinn um í háskóla og fékk splunkunýja vinnu, þetta er samt líka búið að vera frekar dramatískt ár fyrir marga í kringum mig en ég hef fulla trú á því að 2008 komi með skemmtilegri dramatík ;)

Það sem er hinsvegar efst í mínum haus núna er nýja vinnan mín ég tók uppá því að fara að kenna...í Álftanesskóla það leggst misvel í mig en í augnablikinu er ég jákvæð, hinsvegar getur verið annað hljóð í mér á morgun eða hinn, en fyrsti dagurinn var í dag og gekk hann svona bara ágætlega, núna óska ég þess samt heitt að ég hafi ekki verið svona svakalega erfið við kennarana mína í grunnskóla eins og sumir af þessum gríslingum geta verið...en eftir á eru þau voða yndisleg.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 15:13:08 / beggagk

kringluæði??? hvað er málið með það???

jæja kominn vel tími á færslu....

ætla samt að hafa þetta stutt þar sem ég er í kaffi og mér heyrist luxor eða hvað þeir nú heita vera að syngja þarna frammi verð bara hreinlega að fara og hlusta ;)

annars er smá brjálæði í skólanum í augnablikinu og vil ég kenna því um ómerkilegar og jafnvel engar færslur hér á bæ....er að byggja hús, gera möppu, byggja annað hús, símastól og ég veit ekki hvað og hvað...

eeenn mig langaði að óska henni ólöfu minni til hamingju með að vera búin að bæta einu ári við aldur sinn í dag og Nönnu heimsreisufara sem varð hvorki meira né minna en 23 ára 20.nóvember síðastliðinn innilega til hamingju með daginn skvísur...

jæja farin að hlusta á magna....og röfl í kúnnum....

sæl að sinni


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 12:15:17 / beggagk

frat

Jæja tími til kominn að henda inn einhverri færslu hérna verð samt að segja að þið verðið að bíða aðeins lengur til að fá að heyra eitthvað merkilegt þannig að þetta er bara fyrir hana ólöfu mína sem finnst alltaf jafn gaman að lesa bloggið mitt sama þótt ég sé að tala um rollur eða eitthvað álíka merkilegt ;)

Gummi er að fara vestur til þess að slátra þessum aumingja greyjum þannig að ég er skilin ein eftir hérna í kotinu að gera ekki neitt og vinna...væri alveg til í að vera að gera eitthvað skemmtilegra en það eins og t.d að vera að fara á airwaves eeeen mín var ekki nógu rík og nógu fljót að kaupa miða...súrt þannig að ég verð að láta mér næga að heyra um þetta í fréttunum...

er núna að passa tvo gríslínga sem þótt ótrúlegt megi virðast steinsofa eins og er má samt búst við því hvað úr hverju að þau fari að vakna og æpa á mat....

öööööö já þá er það bara komið allt sem ég hef að segja man örugglega fullt fleira um leið og ég er búin að klikka á staðfesta...

p.s vill einhver koma með mér á hönnun og heimili um helgina....plíííííís...


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 14:08:39 / beggagk

...

var komin með mjög innantóma og tilgangslausa færslu sem datt svo bara öll út :$

Er í ironcad að gera ekki mikið hef það á tilfinninfunni að ég eigi eftir að koma ekki mikið ríkari út úr þessum tíma algjörlega mín sök þar sem kennarinn er ótrúlega þolinmóður....

tíminn í morgun gekk samt alveg ljómandi vel og ég er á góðri leið með að koma mér upp möppu til að geta sótt um í þessum harða heimi og jafnvel nælt mér í eina tvær gráður....

annars er lítið að gerast hjá mér annað en vinnan og skólinn skellti mér hinsvegar á skauta á þriðjudaginn í fyrsta skiptið síðan ég var örugglega 14 ára, fór svo og lærði í fyrsta sinn að gera fasta fléttu! til hamingju ég...

adios


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 15:58:18 / beggagk

rokrassgat

brrrr... drullu skítaveður úti... ég var svo heppin að kennarinn minn ákvað að vera fjarverandi í dag þannig að núna sit ég heima undir teppi og hef ekki hugsað mér að stíga út í þetta veður aftur nema ég nauðsinlega þurfi þess....

um seinustu helgi fór ég og lék hetju og smalaði saman nokkrum rollum endaði líka með þessar svakalegu harðsperrur og svo var svo mikið rokrassgat að við fórum ekki einu sinni á ball! sem var kannski bara fínt þar sem að seinast fór ballið alveg úr böndunum 8|

jæja ég kem kannski með eitthvað meira krassandi næst......


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 11:34:16 / beggagk

hras og þras

ég verð að segja frá fjallgöngunni sem ég fór í síðastliðinn föstudag! ég og maría ákváðum að skella okkur aðeins í sveitina (hveragerði) og labba inn reykjadalinn, mér finnst að það ætti að breyta nafninu í raykjafjall þar sem að ég var búin að ímynda mér afslappaða göngu inn dal! en ekki massífa fjallgöngu! þrátt fyrir lélegan undirbúning síðustu ára í fjallgöngu tókst mér nú samt að komast upp mesta brattan en planið var að labba inn að þessum fræga hver sem hægt er að baða sig í, vandamálið var bara það að það eru hverir útum allt þarna (það er kannski ástæðan fyrir því að þetta heitir hveragerði??) þannig að við vissum aldrei hvort við værum alveg að verða komnar, eftir að hafa svo vaðið yfir ár gengið í drullu fram hjá tugum hvera þá er aðeins einn hver eftir þannig að það getur eiginlega ekki annað verið en að þetta sé hann en nei nei þá endar stígurinn sem maður á að labba eftir bara úti í einhverju mýri við ætluðum sko ekki að láta það stoppa okkur eftir allt þetta labb. María fór að labba í einverja hringi mjög passasöm að stíga ekki í mýrina en ég auðvitað óð áfram og sökk á bólakaf ofan í einhvern drullupitt! náði samt að stökkva nánast jafnfætis upp úr en það gekk ekki betur en svo að ég endaði bara með annan skóinn á mér!! aaarrrg þarna var ég föstu uppi á einhverju fjalli á einum skó! á endanum náðum við svo að tosa hann upp úr drullunni og þegar ég ætlaði að fara niður að læk sem var þarna til að skola alla drulluna af sem reyndar náði alveg uppað hnjám þá flaug ég auðvitað á rassinn og rann niður brekkuna! Það varð síðan ekkert að þessari hveraferð þar sem að við ákváðum að koma okkur að þessu klikkaða svæði og fara bara í sund :haha:

um kvöldið bætti ég mér þetta svo upp með því að fara á ÆÐISLEGA tónleika með Ólöfu Arnalds, Budam sem er frá færeyjum og Jens Lekman!!! greyið allir þeir sem misstu af þessu!!! færeyski gaurinn kom sérstaklega á óvart hvílík snilld....

helgin þar á undan var svo líka askoti góð fór auðvitað á dönsku dagana og djammaði allverulega hitti fullt af fólki sem ég er ekki búin að sjá í mörg ár og á sunnudeginum fórum ég Gummi og María að leika túrista en við keyrðum hringinn í kringum snæfellsnesið og þar sem við vorum með myndaglöðu maríu þurftum við auðvitað að stoppa ALLSTAÐAR þannig að við skriðum aftur í hólminn um kvöldið og gistum þar....

svo var það bara skólinn á þriðjudaginn sem leggst bara mjög vel í mig klára um jólin og ÆTLA í háskóla næsta haust sama hvort það verður hér eða einhverstaðar annarstaðar!!! nenni þessu ekki lengur

verð svo aðeins að tala um strætókerfið en þar sem að ég er fátækur námsmaður fæ ég auðvitað frítt í strætó en ólíkt örugglega 90% af nemendunum hérna þá neyðist ég til að nota kortið mitt í gærmorgun kom ég 40 mín of seint ok allt í lagi með það ég var auðvitað bara að læra á þetta nýja kerfi sem á að vera svo æðislegt en í morgun ætlaði ég ekki að vera svona sein þannig að ég tók strætóinn sem kemur 30 mín á undan já þeir var aðeins á 30 mín fresti heiman frá mér en svo aftur á móti hinn strætóinn sem ég þarf að taka kemur á 15 mín fresti hvað er málið með það var þetta ekki bara fínt eins og þetta var á 20 mín fresti þarna get ég s.s ekkert stillt inná það hvenær ég næ næsta strætó!!! ég endaði svo auðvitað með því að vera 25 mín of sein í morgun!!!

 jæja nóg um tuð um hluti sem enginn nennir að lesa ;)

ble


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 20:02:35 / beggagk

újeeee beibí

síðan síðast er ég búin að fara í eina utanlandsferð, gott fillerí og vinna þar á milli...

utanlandsferðin var auðvitað til danmerkur alltaf frumlegheitin í okkur mér sýnist ég líka ekkert vera á leiðinni að hætta að fara til danmerkur þar sem allir virðast vera að flytja þangað...annars stóð dammó auðvitað fyrir sínu og að sjálfsögðu voru rúllandi steinarnir algjör snilld ;) ég skilaði auðvitað kveðju til Mick Jagger frá öllum...annars sleiktum við bara sólina, versluðum, drukkum bjór og fleira...

seinasta helgi var svo helvíti góð þrátt fyrir það að ég var að vinna en við vinkonurnar göltuðumst saman á föstudeginum og svo á laugardeginum var auðvitað massa gey pride partý með glimmer þema og kokteildrykkju svo enduðum við að sjálfsögðu niðrá nasa þar sem við dönsuðum rassgatið af okkur, svo var það bara þynnkuvinna daginn eftir...

annars bíð ég bara með óþreigju eftir næstu helgi en ég ætla að beila á menningarnótt og skella mér á danska daga í hólminum þar sem að ég komst ekki síðast þá eru heim tvö ár síðan ég hef fengið að upplifa danska daga!! þvílíkt hneiksli...

jæja ég ætla að segja það gott...ætla að fara að reyna að endurheimta fötin mín eftir seinustu helgi ;)

 p.s sætu sætu frændsystkinin mín heita Árný og Valtýr


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan